Innskráning
24
febrúar

3. önn

Written by dadigeir. No comments Posted in: Uncategorized

Jæja þá er þriðja önn byrjuð. Það var enginn tími í náttúrufræði á mánudaginn útaf starfsdegi svo í dag var fyrsti tíminn á önninni. Við fengum verkefna bækurnar til baka, það kom bara vel út hjá mér. Núna erum við að fara að byrja á þemavekefni í náttúrufræði og samfélgasfræði um Þjórsá og Þjórsárdal, fimmtudags tímarnir muna fara í það (bæði sam og nát). En hina dagana verðum við með kennaranema sem heitir Hildur Lilja, hún mun kenna okkur um rafmagn. Fyrsti tíminn hjá henni var í dag og í honum vorum við að fræðast um stöðurafmagn og gerðum smá tilraun með það. Við áttum að blása upp blöðru og nudda henni í hárið, taka hana svo frá og sjá hvað hárið myndi gera og svo gerðum við aðra svipaða. Það verður svo enginn náttúrufræði tími á morgun því þá ætlum við að fara og hvetja Flúðaskóla áfram í Skólahreysti. ÁFRAM FLÚÐASKÓLI

Set hérna inn skemmtilega grein af mbl um stöðurafmagn og sokkabuxur.

Hérna er svo fróðleikur um stöðurafmagn

Hérna er svo myndband hverning á að gera einfaldan rafmagnsmótor

Set hérna svo eina frétt í lokinn um hæðsta hund í heimi

þjórsá

Hér er svo ein mynd af Þjórsá í tilefni þess að við séum að fara að læra um hana.

Jæja er þetta þá ekki bara orðið gott. Bless, bless Daði Geir

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.

Some HTML is OK

or, reply to this post via trackback.