Síðasta bloggið þetta skólaár. Sveppablogg og fl.

Posted in Uncategorized on maí 4th, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

Nú hafa verið skráðar nálægt 2000 tegundir sveppa á Íslandi auk 710 tegunda fléttna sem líka eru sveppir. Þar af eru 660 tegundir kólfsveppa, sem skiptast í 75 ryðsveppi, 36 sótsveppi og 550 tegundir sem tilheyra flokki kólfsveppa. Það skal tekið fram að þetta eru ekki nákvæmar tölur og þær eiga eftir að breytast þegar sveppaflóra Íslands verður könnuð nánar.

Hér getið þið séð ferðir álfta sem eru með senda og eru á leið til Íslands og komnar.

Gleðilegt sumar Kv Birgir Örn

Eldgos & Eldingar

Posted in Uncategorized on apríl 20th, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

Páskaegg góð fyrir heilsuna?

Posted in Uncategorized on apríl 6th, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

SMELLIÐ HÉR kv Birgir Örn

Þjórsá

Posted in Uncategorized on mars 17th, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

Þjórsá er lengsta fljót Íslands en hún rennur um 230 km leið frá upptökum til ósa. Vatnasvið Þjórsár er 7530 ferkílómetrar (km2) og er það næststærsta vatnasvið fljóta á Íslandi á eftir Jökulsá á Fjöllum. Meðalrennsli Þjórsár við Urriðafoss er um 360 rúmmetrar á sekúndu (m3/s).

Þjórsá rennur á mörkum Árnes- og Rangárvallasýslna og er hún blanda af dragá, lindá og jökulá. Hún á upptök sín við norðanverðan Sprengisand og kallast þar Bergvatnskvísl. Margar þverár falla í Þjórsá enda er leiðin til sjávar löng. Stærsta þveráin er Tungnaá að austan en árnar tvær koma saman í Sultartangalóni. Af öðrum þverám má nefna Þjórsárkvíslar, Hnífá, Kisu, Dalsá, Fossá, Sandá, Þverá og Kálfá en þær falla allar í Þjórsá að vestan. Helstu fossar í Þjórsá eru Kjálkaversfoss (Hvanngiljafoss), Dynkur (Búðarhálsfoss), Gljúfurleitarfoss, Tröllkonuhlaup, Þjófafoss, Búði og Urriðafoss.

Þjórsá og þverár hennar eru orkumesta fallvatn á Íslandi en þar eru um 27% af virkjanlegri vatnsorku landsins. Hugmyndir um virkjun Þjórsár og þveráa hennar komu snemma fram og á árunum 1915-1917 stundaði norski vélfræðingurinn Gotfred Sætersmoen rannsóknir á Þjórsársvæðinu í því skyni. Hann sá fyrir sér fimm virkjanir í Þjórsá og eina í Tungnaá en ekkert varð úr framkvæmdum fyrr en rúmum 40 árum seinna þegar Búrfellsvirkjun var byggð. Síðan þá hafa Sigöldu-, Hrauneyjafoss- og Sultartangastöð bæst við auk Vatnsfellsvirkjunar. Í undirbúningi eru virkjanir við Búðarháls, Minna-Núp og Urriðafoss.

Margar náttúruperlur og sögustaðir eru í næsta nágrenni Þjórsár. Þar ber helst að nefna Þjórsárdal sem er fjölsóttur ferðamannastaður, en áin rennur ekki eftir honum heldur fyrir mynni hans. Árið 1939 grófu norrænir fornleifafræðingar upp bæjarrústir að Stöng í Þjórsárdal en byggð eyddist þar í Heklugosi 1104. Byggt hefur verið yfir rústirnar, en þær voru einnig fyrirmynd Þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal sem reistur var í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar.

Þjórsá var mikill farartálmi fyrr á tímum. Hún var fyrst brúuð árið 1895 og var það önnur stórbrúin í landinu á eftir brúnni yfir Ölfusá. Brúin yfir Þjórsá var síðan endurgerð 1949.  kv Birgir Örn

Má rekja meira ryk í andrúmsloftinu til bráðnunar jökla?

Posted in Uncategorized on febrúar 23rd, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

SMELLIÐ HÉR  kv Birgir Örn

Lýsi minnkar líkur á geðsjúkdómum

Posted in Uncategorized on febrúar 2nd, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

   SMELLIÐ HÉR  kv Birgir Örn

fallklífastökk

Posted in Uncategorized on janúar 20th, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

Travis Pastrana  SMELLIÐ HÉR

Thomas Alva Edison

Posted in Uncategorized on janúar 6th, 2010 by birgirorn — Be the first to comment!

Branson sýnir nýja geimferju

Posted in Uncategorized on desember 8th, 2009 by birgirorn — Be the first to comment!

SMELLIÐ HÉR  kv Birgir Örn

stjörnufræði

Posted in Uncategorized on nóvember 24th, 2009 by birgirorn — Be the first to comment!

http://www.stjornuskodun.is/ og  http://www.astro.is/ kv Birgir Örn