Innskráning
02
desember

Glærur

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Jarðeðlisfræði

Við vorum bara að klára glærurnar í tímanum.  

Smá af glærunum:

Það lifðu 10 risaeðlur á Júra og Trías. Ein af þeim hæet Þórseðlubróðir og lifði seint á júra. Hann var jurtaæta og var skrokklengd hans 25 m. og hæð hans 12 m. Hann var allt að 90 tonn. :0

Svo var alveg fullt af öðrum risaeðlum á glærunum stórum, littlum, þungum, léttum, jurtætum, kjötætum, skrítnum, eðlilegum, fallegum, ljótum og stórfurðulegum.

:D                     XD                          :O)                 :-)                : þ                       ; p               (C:

24
nóvember

Jarðeðlisfræði

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Jarðeðlisfræði

Við erum að læra um jarðeðlisfræði. Í gær vorum við bara að undirbúa vinnu á glærusýningum. Við byrjuðum svo á fullu í dag við gærurnar. Minn hópur er með júra og trías tímabilin. Við setum upplýsingar um risaeðlur og allt sem tengist tímabilinu.

17
nóvember

Við horðum á mynd sem heitir Earth the power of the planet. Hún fjallar aðallega um eldfjöll, flekaskil og myndun jarðar. Erta ale (helvíti) er staður í Afríku sem er eini staðurinn í heimininum sem hægt er að sjá iðrun jarðar. Það er gígur fullur af hrauni sem er á stögugri hreifingu. Erta ale þýðir reykjandi fjall á tungumáli Afríku. Erta ale gýs ekki því það vantar kraftinn til að spúa hrauninu. Á nóttinni er hraunið allt öðruvísi en á daginn og myndar ákveðið munstur sem hraunið fer í. Eldfjöllin björguðu jörðinni eftir snjóboltatímabilið eða þegar jörðin var þakin ís og snjó. Eldfjöllin byrjuðu að gjósa og ísinn bráðnaði og hitastigið á jörðinni fór úr -50 °C í 50 °C.

 

Þetta eru myndir  af Erta ale.

Þetta er eldfjall sem heitir Anak.

Þetta er mynd af Jörðinni á snjóbolta tímabilinu

09
nóvember

Eðlisfræði

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Eðlisfræði

Við erum ennþá að læra bara um eðlisfræði. Í dag var bara eitthvað verkefnablað um eðlisfræði.

03
nóvember

Eðlisfræði

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Eðlisfræði

Núna er 4. hlekkur byrjaður og við erum í eðlisfræði. Á mánudaginn vorum við að vinna í vinnuhefti, en á þriðjudaginn að gera tilraunir. V ið vorum að finna eðlismassa spítukubbs, plast búts, málms, vatns og álpappírs. Við vigtuðum hlutina og mældum rúmmálið. Við mældum rúmmál álpappírs með því að búa til kúlu úr honum og setja hann í vatn. Rúmmál vatn vissum við af því þetta voru 100 ml og 1 ml er jafnt og 1 rúmsentimeter. Semsagt þetta voru 100 rúmsentmetrar. :D

massi í grömmum deilt með rummáli í rúmsentimetrum jaft og eðlismassi. :D

01
nóvember

Krufning

Written by 97hafdis. No comments Posted in: líffræði

Við vorum að krifja brjósthollíffæri í tímanum. Við skoðuðum barkann, lungun, hjartað, nýrun og lifrina. Við skoðuðum allt og gerðum svo skýrslu í næsta tíma.

07
október

Vatnamæling

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Efnafræði

Við vorum að mæla súrefni, ph-gildi, grugg og hitastig í Hellisholtalæk og í Litlu láxá. Við settum dollu ofan í vatnið, skrúfuðum lokið á og settum vatn í littla krukku. Settum svo tvær súrefnistöflur í það og veltum henni.  Svo ,ældum við ph gildi alveg eins nema með 1 ph töflu. Við mældum líka grugg með því að horfa ofaní dolluna á límiða sem var ofaní dollunni.

01
október

rúmmál

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Eðlisfræði

Við vorumað læra um rúmmal og fengum hefti um það. Svo gerðum við að mæla rúmmál steina með því að setja þá i vatn. við settum vatn í ml glas og steininn ofaní. Þá hækkaði vatnið t.d um 1 ml þá var steinninn 1 rúmsentimeter.

27
september

Vatn fannst á tunglinu

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Fréttir

Það hefur komið vísindamönnum á óvart hversu mikið vatn er að finna í jarðvegi á tunglinu. Þrjú geimför, m.a. indverska könnunarfarið Chandrayaan, hafa sýnt fram á að örþunn vatnsfilma þeki agnirnar sem mynda jarðveginn á tunglinu. Fram kemur á fréttavef BBC að um mjög lítið magn sé að ræða. Upplýsingarnar geti hins vegar reynst gagnlegar fyrir geimfara, sem vilji búa á tunglinu.

tekið af  mbl.is

22
september

Meiri efnafræði

Written by 97hafdis. No comments Posted in: Efnafræði

Við vorum að gera tilraunir með mjólkurfoss og matarliti. Við settum frosna mjólkurmola ofaní heitt vatn og þá bráðnaði molinn, og mjólkin settist á botninn eins og foss. Hin tilraunin var að setja kalt vatn í skál, matarlit og heitt vatn í littla flösku. Við settum flöskuna ofaní skálina og skrúfuðum lokið hægt af og horðum á hvað gerðist. Matarliturinn flaut ofaná vatninu því heitt vatn er eðlisléttara.