við erum búin að vera að læra um bylgjur eins og ef þú ert með tvö vín glös og bleitir puttan og ferð svo hring eftir hring þá kemur svona ííííííííjj hljóð og síðan var eithvað dót sem kom svona dropi í tölvuni á einhverri síðu og þá sér maður hvernig bylgjunar berast og fara og ehv °við erum líka að læra lögun bylgna þar er öldutoppur og öldudalur og jafnvægisstaða og bylgjuleingd.
Hér er myndband með svona bylgjum (:
http://www.youtube.com/watch?v=wBydVCF4DrY
við erum byrjuð á nýjum hlekk sem heitir hljóð bylgjur við lærum hvernig hljóðið berst eins og ef þú ert í sundi og berð í steina heyrist það mjög vel en ef þú ert á tunglinu þá heyrist ekkert þó það kemur sprengja við hliðiná heyrist ekki neitt. ef þú slærð á teyju fara sameindirnar í andrúmsloftitinu næstar henni á hreyfingu og hljóðið/sveiflunar berast á eyranu þá heyrir þú hljóð. ef þú ert í tómu herbergi heyrist bergmál en ef þú setur mynd á veggin heyrist ekki ekki eins mikið bergmál.
http://www.youtube.com/watch?v=-wu3ok8PpS8
í vikuni vorum við að undirbúa okkur fyrir kinningu fyrir daginn í daf ég var með sóley og við skrifuðum um leyndardóma flugsins
Til þess að geta flogið þartu lyftikraft, þyngdarkraft, kný og loftmótstöðu
lyftikrafturinn er kraftur sem lyftir upp vængjunum loftið fyrir ofan fer lengri leið og þarf því að fara hraðar til þess að hann geti mætt vindinum fyrir neðan á sama tíma án hanns gætiru gleymt því að fljúga
þyngdarkrafturinn er krafturinn sem heldur þér á jörðinni knýr er vélin loftmótstaða er straummótstaða lofttegund sem leitast við að draga úr hraða hlutar.

í dag gerðum plaggöt og gátum líka klárað verkefni.
á mánudaginn hlustuðum við bara á Höllu Siggu.
á fimtudaginn við vorum að gera verkefni um tunglið og strákarnir voru í tölvuveri
við erum búin að læra mest um tunglið í þessari viku og um tunglmyrkva og sólmyrkva. sólmyrkvi er þegar tunglið fer fyrir sólina og einn punktur á jörðini er alveg svartur. 20 maí 2010 kemur sólmyrkvi á íslandi og allt verður svart. tunglmyrkvi er þegar sól jörð og tungl eru í beinni línu.

í gær gerðum við glærur um árstíðarskipti ,dægraskipti og segulljós.
dægraskipti
Dægraskipti stafar af möndulsnúningi jarðar. Vegna möndulhallans eru dagarnir þó mislangir eftir árstíma og eftir því hvar við erum stödd á jörðinni.
Árstíðarskipti
Ef þú dvelur á hverri hinni reikistjarnanna meðan hún fer meira en eina umferð um sól mundirðu komast að því að sumar þeirra eiga eitt einkenni sameiginlegt með jörðinni en aðrar ekki. Brautarhreyfing ræður hvort það er vor sumar vetur eða haust.
segulljós
Menn komust af því að segulsvið jarðar safnar eindum úr sólvindinum á tvö svæði sem eru í laginu eins og kleinuhringir. Og þessi tvö hringlaga svæði eru kölluð geislunarbelti van allens

í dag vorum við í stöðvavinnu og stöðvarnar voru um jarðeðlisfræði. lofthjúpur og loftslag. stöð5 hvert stefnir hiti jarðar? hann stefnir hærra þá bráðnar ísinn við báða pólana sjávarstaða hækkar lífríki breitist og borgir fara á kaf.

í dag horðum við á þátt sem var alveg ágætur í honum var hvernig loftslagið í jörðini var og mér fanst skemtilegast þegar það var maður sem hoppaði alveg niður á jörðina úr geimnum.svo var kall sem var á svona bretti og hoppaði niður og gerði fullt af einhvejum listum í loftinu

Við horfðum á earth the power of the planet, mér fannst hún mjög áhugaverð en samt svolítið langdregin í endan. Myndin fjallaði um hvernig flekar klessast á hvorn annan og mynda fjallagarða, myndin fjallaði líka um eldgos og hvernig það verður til.
Eldgos myndast þegar tveir flekar klessast á hvorn annan en annar flekinn fer yfir hinn og hinn flekinn fer niður undir yfirborð jarðar. Flekarnir halda síðan áfram að ýtast að hvor öðrum og flekinn sem fór myndar fjall en hinn heldur áfram undir jörðina í gegnum kjarnan og kemur síða upp einhverstaðar annarstaðar og tekur með sér kjarna sem hann fór í gegnum með sér þá myndast eldgos.
hér eru líka myndir af eldgosi !

við erum búin að gera ritgerð sem átti að vera 1000 orð og svo erum við búin að fara smá í kynfræðslu og við erum ný byrjuð á hlekk 4 sem er um eðlisfræði.